Á tónsviðinu

Jón Trausti 150 ára


Listen Later

Á þessu ári eru 150 ár frá fæðingu skáldsins Jóns Trausta. Skírnarnafn hans var Guðmundur Magnússon, hann fæddist 1873 og dó 1918. Jón Trausti var einn helsti skáldsagnahöfundur Íslands á fyrstu tveimur áratugum 20. aldar, og má nefna sögur hans „Höllu", „Heiðarbýlið", „Leysingu" og „Önnu frá Stóruborg". Einnig hafa verið samin lög við mörg ljóð hans, sum alþekkt eins og „Draumalandið" eftir Sigfús Einarsson og „Ég vil elska mitt land" eftir Bjarna Þorsteinsson. Í þættinum verður flutt tónlist við ljóð Jóns Trausta og einnig verður spjallað við Hólmstein Eið Hólmsteinsson, en hann lærði að lesa fjögurra ára gamall árið 1976 og bókin sem var notuð til lestrarkennslunnar var skáldsagan „Halla" eftir Jón Trausta, þótt fáum dytti í hug að kalla hana barnabók. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Björn Þór Sigbjörnsson og Gunnar Hansson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV