Já það er Rokkland í dag eins og alla sunnudaga og ýmislegt og allskonar á dagskrá. Við kynnumst Jónasi Björgvinssyni (Jonas Bjorgvinsson) aðeins, en hann var að senda frá sér fyrstu sólóplötuna sína ? 50 ára gamall. Hann fékk Ómar Guðjónsson til að vera sín hægri hönd og upptökustjóri. Hann ætlaði að gera allt öðruvísi plötu og fá hina og þessa til að syngja lögin sín en endaði á að syngja allt sjálfur. Við heyrum í þeim Jónasi og Ómari í þættinum. Við heyrum líka aðeins í Gogga í Sigur Rós frá Abbey Road, en þær gleðifréttir bárust í vikunni að Kjartan Sveinsson er genginn aftur til liðs við Sigur Rós og þeir Goggi, Kjarri og Jónsi eru þessa dagana staddir í Abbey Road í London að taka upp nýja músík. Við heyrum í Gogga beint frá Abbey Road. Elvar Þór Hjörleifsson, Mamiko D. Ragnarsdóttir og Elíza Geirsdóttir Newman segja okkur frá nýju lögunum sínum. Svo heyrum við í Sting og Jimmy Page, Fontains DC, Abba og Patti Smith t.d. Ég óska konum þessa lands til hamingju með konudaginn.