Á tónsviðinu

Jónsmessunótt


Listen Later

Jónsmessunótt er nóttin milli 23. og 24. júní. Fyrr á öldum trúði fólk víða um lönd að þetta væri töfranótt og þá færu álfar á kreik. William Shakespeare notaði sér þessa þjóðtrú þegar hann samdi gamanleikritið „Draum á Jónsmessunótt“ undir lok 16. aldar, en í leikritinu koma álfar mikið við sögu. Breska tónskáldið Benjamin Britten samdi óperu upp úr leikriti Shakespeares og var óperan frumsýnd á Aldeburgh-hátíðinni 11. júní 1960. Í þættinum eru flutt atriði úr óperunni og notuð hljóðritun sem var gerð undir stjórn höfundar sama ár og óperan var frumflutt í Aldeburgh 1960. Í aðalhlutverkum eru Alfred Deller og Elizabeth Harwood. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV