Segir Sigurjón Sighvatsson um stóra bróđur sinn Karl J. Sighvatsson í Rokklandi vikunnar sem er endurflutt í kvöld kl. 22.05
Nćsta föstudagskvöld; 12. september verđur Karlsvaka í Eldborg í Hörpu. Stórir og glćsilegir minningartónleikar um Karl Sighvatsson rokkstjörnu, organista og tónskáld. Ţar kemur fram Kalla til heiđurs, hópur af frábćrum listamönnum; Mugison, Megas, Ólafur Arnalds, Apparat Organ Kvartett, Gunnar Ţórđarson, hljómsvetirnar Flowers, Mannakorn og Hjaltalín auk fjölmargra annarra. Ţá verđur efnt til sérstakrar Hammond orgíu, ţar sem nokkrir af fremstu organistum landsins leiđa saman hesta sína og Hammonda.
Af ţessu tilefni er Rokkland helgađ Kalla og leiđsögumađur er Sigurjón bróđir hans sem fćddist 18 mánuđum eftir Kalla og var međ honum í hljómsveitum ţegar ţeir voru yngir, t.d. í Flowers sem var ein allra vinsćlasta hljómsveit landsins áriđ sem Bítlarnir gáfu út Sgt. Peppers.
Kalli spilađi á Hammond orgel og fleiri hljómborđ međ Trúbrot, Flowers, Mannakornum, Ţursaflokknum, Tónum, Dátum og fjölmörgum fleiri hljómsveitum og listamönnum. Hann samdi tónlist fyrir hljómplötur, leikrit og kvikmyndir, m.a. kvikmyndina Atómstöđina. Og ţađ eru hans lög og lengri verk sem verđa í fyrirrúmi á Karlsvökunni og hafa veriđ sérstaklega útsett fyrir stćrri kammersveit, hrynsveit og kór, m.a. af Viktori Orra Árnasyni liđsmanni Hjaltalín.
Ţađ heyrist líka í Kalla sjálfum í ţćttinum, en Lísa Pálsdóttir talađi viđ hann fyrir ţáttaröđ sem hún og Andrea Jónsdóttir gerđu fyrir Rás 2 ţegar tímamóta-platan LIfun međ Trúbrot varđ 20 ára áriđ 1991.