Á tónsviðinu

Klukkur


Listen Later

Sinfónía nr.101 í D-dúr eftir Haydn er kölluð Klukkusinfónían af því að taktfastir tónar í 2. þætti verksins minna á tikk í klukku. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 16. feb. kl. 14.03 verður þessi kafli leikinn svo og önnur tónverk þar sem úr og klukkur koma við sögu. Taktfast tikkið og slátturinn henta vel sem efniviður í tónlist og fá að hljóma í tónsmíðum frá mismundandi tímum. Þar má nefna sönglagið „Die Uhr“ (Úrið) eftir Carl Loewe, óperuna „L´heure espagnole“ (Spænska stundin) eftir Maurice Ravel og tónverkið „Clockworking“ eftir Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV