Koma svo!

Koma svo!

By PodcaststöðinSociety & Culture
Download on the App Store

All Koma svo! episodes

  • Koma svo! - Verndum þau
    Í tuttugasta og níunda þætti Koma svo! er rætt við Þorbjörgu Sveinsdóttur sálfræðing, sem starfar í Barnahúsi og hefur mikla reynslu af barnaverndarmálum. Hún, ásamt Ólöfu Ástu Farestveit uppeldis- og afbrotafræðing, skrifaði bókina "Verndum þau" sem fjallar um skyldur og ábyrgð þeirra sem starfa með börnum og unglingum. Í bókinni eru lesendur upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu, ferli mála af því tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómskerfisins.
    1 hr 24 min
  • Koma svo! - Orkuboltinn jákvæði

    Í tuttugasta og áttunda þætti af Koma svo! er rætt við Júlíus Garðar Júlíusson, fæddan 2. febrúar á því herrans ári 1966. Í kínverskri stjörnuspeki kemur fram að þeir sem fæddust á þessu ári eru eldhestar eða sérstaklega orkumikið fólk. Júlli er einstakur orkubolti, andlegur með afbrigðum og lúnkinn í vefsíðugerð. Hver kannast ekki við jólavef Júlla eða kærleiksvef Júlla? Rekur Þulu veisluþjónustu ásamt eiginkonu sinni og er framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla. 

    1 hr 26 min
  • Koma svo! - Seigla, seigla, seigla
    Í tuttugasta og sjöunda þætti af Koma svo! er rætt við Gunnar Karl Haraldsson, tómstunda- og félagsmálafræðing og meistaranema, um áskoranir lífsins. Snemma lærði Gunnar Karl að hindranir eru yfirstíganlegar og að allt sé hægt ef viljinn er fyrir hendi. Seigla er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar farið er yfir lífshlaup Gunnars Karls.
    1 hr 33 min
  • Koma svo! - Andlegt hjartahnoð
    Í tuttugasta og sjötta þætti af Koma svo! er rætt við Auði Axelsdóttur, iðjuþjálfa og framkvæmdastjóra Hugarafls (og einn stofnanda þess). Auður hefur unnið innan geðheilbrigðiskerfisins lengi og var ekki sátt við margt innan þess kerfis. Þegar hún og félagar hennar ræddu um hvað hægt væri að gera þá þóttu lausnirnar byltingarkenndar því þær miðuðu að því að koma fólki til bata og hjálpa því úti í samfélaginu.
    1 hr 44 min
  • Koma svo! - Skólabókasafn á krossgötum
    Í tuttugasta og fimmta þætti af Koma svo! er rætt við Dröfn Vilhjálmsdóttur, geislafræðing sem tók meistaragráðu í bokasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands  árið 2013 og starfar nú á skólabókasafni Seljaskóla. Dröfn er formaður Félags fagfólks á skólasöfnum og í stjórn IBBY á Íslandi  sem leitast við að vekja athygli á barnabókmenntum og -menningu með hverskyns hætti.
    1 hr 57 min
  • Koma svo! - Stjúptengsl
    Í tuttugasta og fjórða þætti af Koma svo! er rætt við Valgerði Halldórsdóttur, félagsráðgjafa, MA og  ritstjóra vefsíðunnar stjuptengsl.is og formann Félags stjúpfjölskyldna. Valgerður hefur haldið fjölmörg erindi sem tengjast stjúptengslum, foreldrasamvinnu, og umgengni eftir skilnað m.a. fyrir skóla, foreldrafélög, félagasamtök, kirkjuna.  Virðing, kurteisi og mörk eru lykilatriði í öllum samskiptum, eða hvað? Er hægt að spila Matador með Lúdó reglum?
    1 hr 17 min
  • Koma svo! - Lífið, missir og sorg
    Í tuttugasta og öðrum þætti Koma svo! er rætt við Halldór Reynisson, guðfræðing, MA í fjölmiðlafræði og markaðsfræðigrúskara. Hann hefur starfað sem blaðamaður, forsetaritari, prestur og nú siðast sem verkefnisstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs Biskupsstofu. Er einhver æðri máttur sem leiðir mann áfram í lífinu? Stjórnum við ferðalaginu? Hvað varð til þess að sorgin var meginuppstaða starfsævinnar? Eru Íslendingar góðir að syrgja?
    1 hr 30 min
  • Koma svo! Ísland 2 - Serbía 0
    Í tuttugasta og fyrsta þætti Koma svo! er rætt við Bojönu Kristínu Beisic, sem er með BS gráðu í stjórnun íþróttafélaga (Sport Administration) og knattspyrnuþjálfara, um það að flytja til Íslands og ílengjast á landinu. Draumur stúlku í Serbíu um að verða atvinnukona í knattspyrnu, viðbrögð við íþróttameiðslum og ákveðni í að láta ekkert stoppa sig.
    1 hr 31 min
  • Koma svo! - Teiknari, hvernig vinna er það?
    Í tuttugasta þætti Koma svo! er rætt við Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur, teiknara og rithöfund, um það sem einkennir hana, ímyndunaraflið og afkastagetuna. Hún hefur myndlýst fjölda barnabóka og námsefni, haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. Frá því að fyrsta bók Bergrúnar, Vinur minn, vindurinn, kom út haustið 2014 hefur hún verið iðin við kolann, sent frá sér mikið efni og fengið margvísleg verðlaun. Hvaða þýðingu hafa samt myndir fyrir bækur? Erum við Íslendingar bókaþjóð eða orðaþjóð?
    1 hr 27 min