Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Þátturinn Koma svo! er um ferðalag lífsins; börn, unglinga, uppeldi, ákvarðanir og allt sem ferðalaginu viðkemur. Hvað hafði áhrif á þær ákvarðanir sem þú tókst og urðu þess valdandi að þú ert þessi m... more
FAQs about Koma svo!:How many episodes does Koma svo! have?The podcast currently has 64 episodes available.
October 19, 2019Koma svo! - ForeldramissirÍ níunda þætti Koma svo! er rætt við Birnu Dröfn Jónasdóttur, félagsfræðing og blaðakonu, um það að missa foreldri ung að árum. Hver var stuðningurinn? Hvernig stuðning er hægt að veita 12 ára gömlu barni þegar foreldri fellur óvænt frá? Hvaða áhrif hefur foreldramissir á óharðnaðann unglinginn? Hvað getur samfélagið gert í þessum aðstæðum?...more1h 8minPlay
October 12, 2019Koma svo! - Á allra vörum, VAKNAÐU!Í áttunda þætti Koma svo! er rætt við Gróu Ásgeirsdóttur, viðskiptafræðing, verkefnastjóra hjá Flugfélagi Íslands og eina af upphafskonum átaksins "Á allra vörum". Hún greindist með brjóstakrabbamein, leit á það sem verkefni og náði bata. Í þessu ferli kom upp sú hugmynd að styðja söfnunarátak fyrir nýrri vél til að greina betur brjóstakrabbamein. Lítil hugmynd þróaðist og "Á allra vörum" varð til og síðan þá hafa safnast millljónir fyrir góðum málefnum....more1h 13minPlay
October 05, 2019Koma svo! - Þegar óskin rætistÍ sjöunda þætti Koma svo! er rætt við Hrönn Bjarnadóttur, viðskiptafræðing, næstum því hjúkrunarfræðing og með meistarapróf í markaðsfræðum, um barnseignir. Er sjálfgefið að allir geti eignast barn? Eru valmöguleikar þegar kemur að arfgengum sjúkdómum?...more1h 46minPlay
September 28, 2019Koma svo! - Skyldusjálf, óskasjálf og raunsjálf? Sjálfsmisræmi!Í sjötta þætti Koma svo! er rætt við Ragnheiði Guðfinnu Guðnadóttur sem er með meistaragráðu í Félags- og Vinnusálfræði og sérfræðingur og ráðgjafi hjá Forvörnum. Ragnheiður vinnur mikið með það hvernig einstaklingar geta bætt lífsstíl sinn með því að bera ábyrgð á eigin líðan og hegðun....more1h 33minPlay
September 21, 2019Koma svo! - Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt!Í fimmta þætti Koma svo! er rætt við Sigurð Hólmar Jóhannsson, fyrrum flugumferðarstjóra, um það að vera faðir langveikrar dóttur. Sunna Valdis er eina barnið á Íslandi sem greinst hefur með AHC sjúkdóminn sem er mjög sjaldgæfur í heiminum. Af hverju að stofna samtök um barnið sitt? Baráttan við kerfið, tryggja að björgunarlyf séu til og halda geðheilsunni á meðan barnið þjáist....more1h 39minPlay
September 14, 2019Koma svo! - IOGT, tækni og youbitube!Í fjórða þætti Koma svo! er rætt við Aðalstein Gunnarsson, framkvæmdastjóra Bindindissamtakanna IOGT á Íslandi. Hvernig var að alast upp í miðbænum? Er Aðalsteinn upphafsmaður Parkour á Íslandi? Hvaða áhrif hefur það á dreng á fermingaraldri að flytja í Breiðholtið? Leðurjakki, mótorhjól, pönkið og Hlemmur - leið til glötunar eða frama?...more1h 42minPlay
September 07, 2019Koma svo! - Færðu borgað fyrir að leika þér?Í þriðja þætti Koma svo! er rætt við Árna Guðmundsson, aðjúnkt á menntavísindasviði HÍ. Saltvík? Ketill Larsen? Fríkirkjuvegur 11! Þetta þrennt og ævistarfið hefur plantað sér í litlum strák úr Safamýrinni. Reykjavík, Gautaborg og Hafnarfjörður, æskulýðsstörf, félagsuppeldisfræði og uppbygging félagsmiðstöðvastarfs. Áhugi á námi á hærri stigum til að grúska, breyta og bæta stöðu óformlegs náms á Íslandi. ...more1h 42minPlay
August 31, 2019Koma svo! - Er klám fallegt kynlíf?Í öðrum þætti Koma svo! er rætt við Kolbrúnu Hrund Sigurgeirsdóttur, verkefnastýru á nýsköpunarmiðstöð menntamála hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hvenær á að byrja að kenna jafnrétti? Hvernig er jafnrétti kennt? Eru allir eins? Er fjölbreytileikinn eitthvað ofan á brauð? Hvað er fallegt kynlíf? Læra unglingar hvað gott kynlíf er með því að horfa á klám?...more1h 43minPlay
August 24, 2019Koma svo! - ...og orðið er: "Snjótittlingur"Í þessum fyrsta þætti annarar þáttaraðar Koma svo! er rætt við Matthías Frey Matthíasson, íþrótta- og tómstundafulltrúa Voga, um leikaradrauminn, nám, Benjamín dúfu, mótlæti, áskoranir og sigra. ...more1h 47minPlay
June 08, 201925. Koma svo! - Stundum er jákvætt að vera latur!Í 25. þætti Koma svo! er rætt við Láru Aðalsteinsdóttur, verkefnastjóra Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO. Hvað þýðir það að vera Bókmenntaborg UNESCO? Hvað og hvernig er hægt að auka áhuga barna og ungmenna á lestri? Hvernig getur leti haft áhrif á lífið og tilveruna?...more1h 21minPlay
FAQs about Koma svo!:How many episodes does Koma svo! have?The podcast currently has 64 episodes available.