Flestir óperuunnendur kannast við óperuna „Cosi fan tutte" eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Í henni leggja tveir ungir menn gildrur fyrir unnustur sínar til þess að komast að því hve trúar þær eru, en þeir hafa veðjað við eldri mann, Don Alonso, um það að stúlkurnar muni aldrei svíkja þá. Þeir verða fyrir vonbrigðum því báðar stúlkurnar falla á prófinu. Óperan „Cosi fan tutte" var frumsýnd 1790, en það er ekki á allra vitorði að til er önnur ópera, 15 árum eldri, þar sem svipuð saga er sögð nema hvað þar eru það karlmennirnir sem svíkja og konurnar sem koma upp um ótryggð þeirra. Þetta er óperan Les femmes vengées" eða „Konurnar hefna sín" eftir franska tónskáldið André Danican Philidor. Hugsanlegt er að Mozart hafi séð óperuna þegar hann kom til Parísar 1778. Í þættinum verða flutt atriði úr báðum óperunum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.