Kötturinn í sekknum er hlaðvarp Neytendasamtakanna. Eins og við er að búast er áherslan á neytendamál og þar er svo sannarlega af nógu að taka. Við vonum að hlustendur verði alltaf einhvers vísari eftir hvern þátt.
Heitið á þáttunum er tilvísun í gamalt slagorð Neytendasamtakanna „Kauptu ekki köttinn í sekknum!“ Það er óhætt að segja að orðtækið eigi ekki síður við í dag.