Blóði drifin byggingarlist

Kristalsnóttin, sýnagógurnar og gettóin


Listen Later

Í þriðja þætti liggur leið okkar til Þýskalands Nazismans. Við kynnumst menningu gyðinga í Evrópu sem hefur um aldir mátt sæta ofsóknum en menningararfinum var, eins og þjóðinni sjálfri, nær útrýmt í Helför seinni heimsstyrjaldarinnar. Við skoðum Kristalsnóttina 1938 sem olli gríðarlegri eyðileggingu á byggingararfleifð gyðinga og telja má að marki upphafið af stigvaxandi skipulögðum ofsóknum á hendur þeim í Þriðja ríki Hitlers. Sumar byggingar hafa síðar verið endureistar og endurgerðar en hinu litla sem eftir stendur er enn búin hætta sökum uppgangs þjóðernishyggju, rasisma og gyðingahaturs í Evrópu síðustu ár.
Umsjón: Hilmar Hildar Magnúsarson.
Lesarar í þættinum ásamt Hilmari: Júlía Margrét Einarsdóttir, Kristófer Rúnar Kvaran og Sigríður Birna Valsdóttir.
Tæknistjórn/samsetning: Lydía Grétarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Blóði drifin byggingarlistBy RÚV