Á tónsviðinu

Krzyztof Pendereck


Listen Later

Pólska tónskáldið Krzyztof Penderecki lést 29. mars sl., 86 ára að aldri. Í þættinum „Á tónsviðinu“ fim. 16. apríl kl. 14.03 verða leiknar tónsmíðar eftir hann. Þar á meðal er eitt frægasta tónverk Pendereckis, „Harmljóð um fórnarlömbin í Hírósíma“ frá árinu 1960, en einnig verða flutt verkin „Stabat mater“ frá 1962, Þrír miníatúrar fyrir klarínettu og píanó frá 1956, Adagietto úr óperunni „Paradísarmissi“ frá 1978 og Tríó fyrir strengi frá 1991. Flutt verður brot úr viðtali sem Guðmundur Emilsson tók við Penderecki þegar hann kom til Íslands á Listahátíð árið 1988. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV