Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Markús Þ. Þórhallsson er sagnfræðingur að mennt og stjórnar um þessar mundir morgunútvarpi á útvarpi Sögu. Í þessum þætti les hann úr bréfi Guðmundar Björnssonar landlæknis og alþingismanns til Dr. Sigfúsar Blöndal bókavarðar og orðabókaritstjóra. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson. Tónlist: Úlfur Eldjárn. Samsetning: Þorgerður E. Sigurðardóttir.