Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

Download on the App Store

Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík episodes

  • Kveðjustund með Sigga Höskulds

    Eftir 111 keppnisleiki sem aðalþjálfari meistaraflokks, rúm 4 ár hjá félaginu og mesta árangur í sögu félagsins, er komið að kveðjustund með Sigga Höskulds. 
    Hann fór yfir víðann völl með Snorra í síðasta sinn áður en haldið var niður á Hlíðarenda. 
    #TakkSiggi
    #StoltBreiðholts 

    1 hr 28 min
  • Leiknishofið: Vigfús Arnar Jósefsson

    Við bjóðum Vigfús velkominn í Heiðurshof félagsins með skemmtilegu spjalli um feril hans úr yngri flokkum til sigurs í 1. deild og svo þegar hann stökk inn og bjargaði félaginu frá falli sumarið 2018 sem þjálfari. 
    Fúsi hefur sterkar skoðanir og tók dansinn með KR og Fjölni í efstu deild á sínum tíma. Hann er með 164 leiki fyrir Stoltið en hætti svo bara eftir að hafa tryggt félaginu sæti meðal þeirra bestu. Virkilega skemmtilegt spjall sem er vel þess virði að hlýða á. 

    #StoltBreiðholts
    #HOF

    1 hr 6 min
  • Leiknishofið: Eyjólfur Tómasson

    Markvörðurinn, fyrirliðinn, sá leikjahæsti með 250 leiki í deild og bikar. Það kemur engum á óvart að hann er nú kominn í heiðurshof félagsins. 

    Hann settist niður með Snorra í spjall um lífið eftir boltann og svo allan ferilinn eins og hann leggur sig. 

    45 min
  • Leiknishofið: Halldór Kristinn Halldórsson

    Halldór Kristinn Halldórsson var vígður inn í heiðurshöll Leiknis, HOFIÐ á dögunum. Hann mætti í spjall um uppeldið í Leikni, hliðarsporin með Val og Keflavík og hvernig það er að ala upp börn í ÍR. 

    Þessi miðvörður er alvöru goðsögn í sögu Leiknis. 

    37 min
  • Leiknishofið: Róbert Arnþórsson-Sá markahæsti

    Róbert Arnþórsson er 3. Leiknismaðurinn til að verða vígður inn í Heiðurshöll félagsins. Róbert er markahæsti leikmaður félagsins þó hann hafi ekki náð 100 leikjum fyrir það. Hann settist niður með Snorra og ræddi sinn tíma hjá félaginu og það má með sanni segja að það hafi verið fróðleg frásögn enda hefur heilmikið vatn runnið til sjávar síðan þessi kappi var að raða inn mörkum fyrir félagið. 

    31 min
  • Leiknishofið: Haukur og Valur Gunnnarssynir

    Þeir Haukur og Valur Gunnarssynir eru fyrstir inn í Heiðurshöll Leiknis (hall of fame) og voru heiðraðir með því að vera fyrstir upp á Wall of Fame vegginn í Austurbergi á fyrsta heimaleik félagsins í Bestu deildinni. 

    Leiknisfólk allt ætti að þekkja andlitin en í spjalli við Snorra fáum við að kynnast þeim aðeins betur og uppruna þeirra hjá Leikni ásamt föður þeirra, Gunnari Góða, sem var ekki minni Leiknismaður og fær að sitja á veggnum með þeim. 

    Til hamingju með þennan heiður þið miklu Leiknismenn. Vel að honum komnir. 

    #StoltBreiðholts
    #Heiðursmenn 

    29 min
  • Pre-Season Spjallið með Sigga 2022

    Hið árlega spjall við Sigga í upphafi leiktíðar er hér komið fyrir ykkur Leiknisljónin að háma í ykkur. Við köfuðum djúpt í undirbúninginn og þá breytingu á nálgun sem átt hefur sér stað hjá félaginu til að festa sig enn frekar í sessi Bestu deildinni. 
    Njótið!

    51 min
  • Farvél Ernir Bjarnason

    Vélin brunaði úr Breiðholti og hélt suður með sjó í raðir Keflvíkinga í haust. 4 ár að baki í röndum stoltsins okkar, leikmaður ársins 2019 og flottar minningar. Við settumst niður með kappanum og kvöddum hann formlega áður en við mætum honum tvisvar í baráttunni í Bestu deildinni. 
    Takk fyrir okkur Vélin! 

    51 min
  • Sólong: Kveðjustund með Sóloni Breka

    Leiknisljónavarpið er snúið aftur og spennandi tímabil framundan. En fyrst kveðjum við tvo dáðadrengi sem hafa fylgt félaginu síðustu 4 ár og halda nú á  vit nýrra ævintýra. Í þessum þætti er það kveðjustund með Sóloni Breka Leifssyni sem skilaði 69 leikjum með félaginu og 29 mörkum. Okkar maður er hættur knattspyrnuiðkun aðeins 23ja ára en eins og kemur fram í spjallinu mun hann fylgja félögum sínum eftir út ferilinn þeirra á meðan hann tæklar önnur vekrefni. 

    1 hr 4 min
  • Bjarki fyrirliði og Leiknisljónin í sóttkví

    Einhver allra hörðustu og háværustu Leiknisljónin lentu í sóttkví eftir Fylkisleikinn og þurftu að finna sér eitthvað til dundurs allir í sitthvoru lagi. Þá var tekið upp hlaðvarp enda um ýmislegt nýtt að ræða. Sævar Atli farinn til Freysa, nýr fyrirliði sem var tekinn stuttu tali og svo bara nýjar raddir í Ljónavarpinu að láta í sér heyra varðandi núverandi tímabil og framtíðina. Þetta var tekið upp á netfundi svo gæðinn eru klárlega ekki þau sömu og venjulega en vonandi þolanleg. 

    Þennan þátt er líka hægt að horfa á á YouTube rás Leiknisljónanna: https://www.youtube.com/channel/UClYZ64v2YX9IIkPl-QCCZHQ

    1 hr 21 min

About Leiknisljónavarpið: Leiknir Reykjavík

From the publisher's feed

Leiknir í Reykjavík er okkar félag og Leiknisljónavarpið er staðurinn þar sem hægt er að ræða málefni félagsins hispurslaust og jafnvel heyra í leikmönnum og starfsmönnum félagsins.