Fríhöfnin

Letigarðurinn - Annar þáttur


Listen Later

Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.
Í öðrum þætti Letigarðsins hittum við fanga sem verið hefur meira í fangelsi en utan þess í aldarfjórðung og annan sem á óstaðfest heimsmet í því að koma við sögu lögreglu. Hvers vegna er svona brjálað að gera í númeraplötudeildinni og af hverju er byssuturn á fangelsinu? Hvað er spice? Hvernig er að reka edrú-borð á bar? Af hverju kalla fangarnir prestinn Holy smoke og hvað myndi koma fyrir þann sem brotnaði niður og gréti í röðinni í Rimlakjöri? Hvers vegna ganga fangarnir alltaf réttsælis hringinn um fótboltavöllinn? 19 ára strákur sem skyndilega rankar við sér í fangelsi segir okkur frá því hversu skíthræddur hann var við staðinn og kvenfangaverðir segja fangana mun kurteisari við sig en karlana.
Umsjónarmaður: Helgi Seljan Jóhannsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV