Í fyrsta þætti Letigarðsins mjökum við okkur hægt og rólega inn fyrir tvöfalda öryggisgirðinguna umhverfis öryggisfangelsið á Litla Hrauni. Hittum móttökustjórann sem verið hefur í fangelsinu í 40 ár og forvitnumst um þrjá ættliði sem setið hafa inni samtímis. Hvers vegna var ákveðið að byggja fangelsi á Eyrarbakka fyrir næstum 90 árum? Af hverju voru einu fangarnir sem þar dvöldu fyrstu áratugina, ýmist smáglæpamenn eða geðveikir? Hvers vegna heyrist svo hátt í viftunni í einangrunarklefunum í gæsluvarðhaldsálmunni og afhverju eru öskubakkarnir úr gúmmíi? Hvað fær maður fyrir að sitja saklaus og að óþörfu í einangrun á annan mánuð? Hvert er vinsælasta lesefni gæsluvarðhaldsfanga? Umsjón Helgi Seljan Jóhannsson og Hrafnkell Sigurðsson.