Fríhöfnin

Letigarðurinn - Fjórði þáttur


Listen Later

Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.
Í þessum aukaþætti af Letigarðinum verður fjallað um hina goðsagnakenndu hljómsveit Fjötra, sem árið 1982 sendi frá sér plötuna Rimlarokk. Þrír af fjórum meðlimum sveitarinnar voru heimilismenn á Litla-Hrauni þegar platan var gerð og tveir þeirra eru nú látnir. Þar á meðal er Sævar Ciesielski, sem stuttu áður hafði fengið 19 ára dóm fyrir aðild sína að Geirfinns- og Guðmundarmálunum.
Rætt er við eina meðlim sveitarinnar sem ekki var í fangelsi um gerð plötunnar og sorglega sögu aðalsprautu hljómsveitarinnar, fyrrverandi hljómborðsleikara Roof tops, Halldórs Fannars Ellertssonar. Við heyrum einnig af áhrifum plötuútgáfunnar á umræður um fangelsismál á Íslandi og ræðum við blaðamann sem viðstaddur var fyrsta og eina blaðamannafund sögunnar af því tilefni.
Umsjónarmaður: Helgi Seljan Jóhannsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV