Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.
Í þriðja þætti Letigarðsins veltum við fyrir okkur hvort sekir menn utan fangelsis séu betri en þeir sem eru innan múranna? Eru fangar verri manneskjur en aðrar? Hvernig er að sitja inni fyrir morð og ala í leiðinni upp tvö lítil börn? Smíðum sakamannabekk og lítum á skólabekk. Svo reynum við að átta okkur á því hvers vegna fangarnir á gangi A-1 sjást aldrei og blanda ekki geði við aðra fanga. Er fangelsi í fangelsinu? Hvað hræðist móðir sem skyndilega horfir á eftir syni sínum inn á Litla Hraun í margra ára fangelsi? Hvor er raunsærri lýsing á fangelsi Shawshank redemption eða Fangavaktin? Og af hverju eru bílar aðstandenda fanga svona slæmir í endursölu.
Umsjónarmaður: Helgi Seljan Jóhannsson.