Gilbert dreki er óánægður með útlit sitt eftir að hafa hitt flottari dreka. Sigrún Daníelsdóttir höfundur bókarinnar Kroppurinn er kraftaverk kemur í heimsókn og talar um að allir kroppar eru flottir sama hvernig þeir eru.
Á leynifélagsfundinum í kvöld kynnumst við Huldu Völu dýravini sem getur talað við dýrin en hún er persóna í bókum sem er auðvelt og skemmtilegt að lesa. Bækurnar koma út hjá bókaútgáfunni Rósakoti og Brynhildur ræðir við útgefandann.