Fyrir skömmu var Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari útnefndur listamaður ársins af breska tónlistartímaritinu Gramophone. Þetta eru ein virtustu tónlistarverðlaun sem um er að ræða. Leiknar verða hljóðritanir með öðrum tónlistarmönnum sem hafa hlotið titilinn "listamaður ársins" hjá Gramophone. Má þar nefna Luciano Pavarotti, Pierre Boulez, Anne Sofie von Otter og Hilary Hahn. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.