Réttarvörslukerfið er til umræðu í þætti dagsins. Sumir eru eflaust þeirrar skoðunar að dómskerfið sé óaðgengilegt eða fjarlægt og það er kannski ekki skrítið, enda flókið kerfi. Alþingiskona, lögreglumaður og saksóknari koma í viðtal og ræða sína sýn á kynin innan réttarvörslukerfisins. Er auðveldara að vera karlkyns lögreglumaður? Hvers vegna er það talin dyggð á Alþingi að geta verið lengur en allir hinir í vinnunni? Og hvers vegna færist það sífellt í aukana að fólk sé dæmt til félagslegs dauða af dómstól götunnar? Viðmælendur: Una Torfadóttir Ella María Georgsdóttir Tryggvi Kolviður Sigtryggsson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Birgir Örn Guðjónsson Finnborg Salóme Steinþórsdóttir Kolbrún Benediktsdóttir Tónlist: Auður - 2020 (feat. Valdimar Guðmundsson og Clubdub) Law & Order (titillag sjónvarpsþáttanna góðkunnu) Fatima Yamaha - What's a Girl to Do Hildur - Water (Hermigervill remix) XXYYXX - About You Lindström & Prins Thomas - Boney M Down