Á þessu ári, 2020, eru liðin 200 ár frá fæðingu skáldsins Gríms Thomsen, en hann fæddist á Bessastöðum 15. maí 1820. Grímur Thomsen var eitt besta skáld Íslands á 19. öld og vinsæl lög hafa verið samin við mörg af ljóðum hans. Má þar nefna lögin „Á Sprengisandi“ (Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn) eftir Sigvalda Kaldalóns, „Íslands lag“ eftir Björgvin Guðmundsson og „Sverrir konungur“ eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson. Þessi lög og fleiri við ljóð eftir Grím Thomsen verða flutt í þættinum. Umsjón hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Leifur Hauksson.