Í þættinum eru flutt sönglög og tónverk við ljóð Þorsteins Valdimarssonar skálds, en á þessu ári eru 100 ár frá fæðingu hans. Mörg tónskáld hafa samið tónlist við ljóð hans og má þar nefna Sigfús Halldórsson, Pál Pampichler Pálsson, Huga Guðmundsson og Þóru Marteinsdóttur. Þorsteinn Valdimarsson var tónlistarmenntaður og samdi sjálfur lög við sum ljóð sín. Lesari í þættinum er Guðni Tómasson. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.