True crime Ísland

Maður sem féll niður svalir í Úlfarsárdal LÆSTUR ÞÁTTUR


Listen Later

KAUPA ÁSKRIFT HÉR 

Í áttunda þætti af fyrstu seríu True Crime Ísland  fjöllum við um nýlegt morð sem átti sér stað í Úlfarsárdal í Reykjavík í desember 2019.

Í málinu lést maður eftir að hafa fallið niður 7 metra af svölum á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Ágreiningur málsins snýst um hvort andlátið hafi borið að með refsiverðum hætti og í málinu koma réttarmeinarfærðingar og verkfræðingar fyrir dóm til að reyna að upplýsa atburðarásina. Í þættinum er farið yfir rannsókn lögreglu og hvernig atvikið var sviðsett af verkfræðingi en í lokin eru niðurstöður Héraðsdóms og Landsréttar bornar saman.

Athugið að þessi þáttur var tekinn upp á meðan flutningar stóðu yfir og því er hljóðið ekki eins og vanalega. 

Við lesum dóminn, rýnum í málsatvik og útskýrum hvernig réttarkerfið tók á þessu sakamáli.

Kostendur þáttarins eru Fons Juris, TM, JYSK, MOODUP, Litaferill  og Kratos Lögfræðistofa.

Þetta sakamál er sjöunda í seríunni okkar Karlmenn sem drepa karlmenn, þar sem við rýnum í dóma sem varpa ljósi á alvarlegustu ofbeldisbrotin á Íslandi. Í hverjum þætti fá hlustendur ekki bara frásögn heldur einnig fræðilega skýringu á því hvernig réttarkerfið virkað út frá þessum málum.

True Crime Ísland er íslenskt true crime hlaðvarp sem leggur áherslu á sakamál og dóma á Íslandi. Markmiðið er að gera dóma og málsatvik aðgengilegri almenningi og sýna hvernig íslenskt réttarkerfi bregst við ofbeldisbrotum.

Fylgdu True Crime Ísland á Spotify, Apple podcast eða Youtube til að heyra fleiri íslensk sakamál og fá fræðilega innsýn í hvernig dómar og réttarkerfið á Íslandi virka í reynd.

Dóminn má lesa í heild á Fons Juris

...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

True crime ÍslandBy True Crime Ísland