...annars er ekkert variđ í ţetta - segir Sigurđur Bjóla Garđarsson í Rokklandi á morgun.
Ţetta segir Sigurđur Bjóla Garđarsson í Rokklandi vikunnar.
Óli Palli rćđir viđ ţá Stuđmenn, Valgeir Guđjónsson, Jakob Frímann Magnússon, Egil Ólafsson og Sigurđ Bjólu um plötuna Tívolí sem kom út áriđ 1976 og er af mörgum talin einn af hornsteinum íslenskrar dćgurtónistarsögu.
Tívolí er önnur plata Stuđmanna, "consept" plata sem gerist í Tívolíinu sem starfrćkt var í Vatnsmýrinni í Reykjavík um miđja síđustu öld, eđa frá 1946 - 1964.
Á Tívolí koma viđ sögu litríkir karakterar eins og Frímann flugkappi, Fjallkonan, ofurskutlan Ólína, Hveitibjörn, Hr. Reykjavík ofl.
Sigurđur Bjóla hefur ekki veriđ fyrirferđarmikill í fjölmiđlum undanfarna áratugi og ţađ er hátíđ í bć í Rokklandi vegna opinberrar heimsóknar Bjólunnar í Rokkland. Rokkland lagđi reyndar land undir fót og sótti Sigurđ heim alla leiđ á Stokkseyri.
Hann segir í ţćttinum m.a. frá ţví hvers vegna hann sagđi skiliđ viđ Stuđmenn á sínum tíma.
Stuđmenn hafa haft hćgt um sig undnfarin ár og "telja ekki í" nema mikiđ standi til. Og núna 6. september nk. ćtla Stuđmenn ađ spila Tívolí-plötuna í heild sinni á tónleikum í Eldborg í Hörpu.