Orðið „Márar“ hefur verið notað um múslima frá Afríku sem lögðu undir sig stóran hluta Íberíuskaga og þar með mestallan Spán á 8. öld. Márarnir ríktu í nokkrar aldir á Spáni, misstu að vísu nokkurn hluta landsins, en Granada var múslimskt konungsríki til ársins 1492 þegar spænsku konungshjónin Ferdinand og Ísabella lögðu það undir sig. Flestum sagnfræðingum ber saman um það að menning og vísindi hafi blómstrað á Spáni á valdatíma Máranna og hefur Alhambra-höllin í Granada oft verið nefnd sem tákn um það, en hún var byggð á 13. öld og þykir ein fegursta bygging veraldar. Í þættinum Flutt er tónlist múslima, kristinna manna og gyðinga frá valdatíma Máranna á Spáni, en einnig verða leikin seinni tíma tónverk sem tengjast menningu Máranna, svo sem „Recuerdos de la Alhambra“ eftir Francisco Tárrega og „Lindaraja“ eftir Claude Debussy. Þótt ótrúlegt megi virðast kemur Tarzan líka við sögu í þættinum. Lesari er Leifur Hauksson og umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir.