Sign up to save your podcasts
Or

Sigridur Soffia Nielsdóttir er fyrsti viðmælandi MBA-varpsins, sem er sjálfstæð syrpa innan HR hlaðvarpsfjölskyldunnar. Sigga Soffía, eins og hún er alltaf kölluð, er menntuð sem dansari frá Listaháskóla Íslands og lauk Executive MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021. Hún hefur komið víða við og unnið að fjölbreyttum verkefnum, til dæmis stýrt flugeldasýningum sem eru byggðar á danshreyfingum sem þróast út í blómarækt sem verða svo að drykk, en Sigga Soffía rekur fyrirtækið Eldblóm (www.eldblom.com). Við ræddum þetta allt í þættinum, en einnig Íslensku bjartsýnisverðlaunin sem Sigga Soffía hlaut í janúar síðastliðnum og auðvitað líka Executive MBA-námið í HR sem hún lætur mjög vel af.
Í MBA-varpinu er jöfnum höndum spjallað við núverandi og fyrrverandi nemendur, ásamt því sem kennarar, gestafyrirlesarar, fræðifólk og aðrir góðir gestir eru tekin tali. Executive MBA-námið í HR er framsækið og nemendur hljóta þar alhliða þjálfun í rekstri og stjórnun auk þess sem persónulegir styrkleikar og leiðtogahæfni eru efld. Mikið er lagt upp úr nýsköpun og að skapa fólki dýrmætt tengslanet í atvinnulífinu.
HR hlaðvarpið er aðgengilegt á helstu samfélagsmiðlum háskólans og streymisveitunum Spotify og Apple iTunes, ásamt hlaðvarpsveitum á borð við Simplecast, Pocket Casts og Podcast Addict. Það er samskiptasvið HR sem er umsjónaraðili hlaðvarpsins ([email protected]). Framleiðendur HR hlaðvarpsins eru þeir Skúli Andrésson og Vilhjálmur Siggeirsson. Stjórnandi MBA-varpsins að þessu sinni er Lilja Björk Hauksdóttir.
By Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik UniversitySigridur Soffia Nielsdóttir er fyrsti viðmælandi MBA-varpsins, sem er sjálfstæð syrpa innan HR hlaðvarpsfjölskyldunnar. Sigga Soffía, eins og hún er alltaf kölluð, er menntuð sem dansari frá Listaháskóla Íslands og lauk Executive MBA-námi frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021. Hún hefur komið víða við og unnið að fjölbreyttum verkefnum, til dæmis stýrt flugeldasýningum sem eru byggðar á danshreyfingum sem þróast út í blómarækt sem verða svo að drykk, en Sigga Soffía rekur fyrirtækið Eldblóm (www.eldblom.com). Við ræddum þetta allt í þættinum, en einnig Íslensku bjartsýnisverðlaunin sem Sigga Soffía hlaut í janúar síðastliðnum og auðvitað líka Executive MBA-námið í HR sem hún lætur mjög vel af.