Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Pétur Magnússon hittir fólk þar sem það er statt. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.... more
FAQs about Meðal fólks:How many episodes does Meðal fólks have?The podcast currently has 11 episodes available.
May 22, 2026Allra meina bótÆttu læknar að skrifa upp á list til að lækna sjúkdóma? Erum við ekki að horfa nógu lengi á hlutina í kringum okkur? Þetta er spurningar sem fyrstu útskriftarnemar af námsbrautinni Listir og velferð við Listaháskóla Íslands varpa fram í sínum lokaverkefnum. Í maí eru haldnir fjölmargir viðburðir þar sem útskrifarnemar verja og kynna lokaverkefnin sín, og við mætum á einn þeirra til að læra meira um samband listar og samfélags. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more56minPlay
May 09, 2026Þar sem sólin skín ekkiDagsbirta er mikilvæg. Engu að síður byggjum við stundum rými þar sem hana skortir. Í dag heimsækjum við Hlíðarendahverfið í Reykjavík ásamt Páli Jakobi Líndal og ræðum við Önnu Sigríði Jóhannsdóttur, arkíktekt og sérfræðing í dagsbirtu í byggðu umhverfi Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more57minPlay
May 04, 2026LabbiðHvernig lyktar E.coli? Hvernig finnur þú ávaxtaflugumeyjar? Hvers vegna hvílir leynd yfir starfsemi músarannsóknarstofa? Í dag fylgjum við Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, í gegnum þrjár mismunandi rannsóknarstofur þar sem rannsóknir eru gerðar á lífverum. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more55minPlay
April 24, 2026Kokteilar og barmenningÍ dag köfum við dýpra ofan íslenska barmenningu og rekjum sögu handverkskokteilgerðar í Reykjavík til fyrsta barþjónsins á Slippbarnum. Við ræðum við Teit Riddermann Schiöth, forseta barþjónaklúbbs Íslands, Leó Snæfeld, íslandsmeistara í kokteilgerð, og Ásgeir Má Björnsson, kokteilbarþjón. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more59minPlay
April 17, 2026Íslandsmeistaramót barþjónaÁ hverju ári eru haldnar fjölmargar barþjónakeppnir, þar sem barþjónar búa til upprunalegan kokteil, hella upp á og framreiða hann eftir öllum kúnstarinnar reglum. Stærsta keppni ársins hér á landi er Íslandsmeistaramót barþjóna, sem haldin er á Reykjavík Cocktail Week að vori. Björg Elva Friðfinnsdóttir, barþjónn á Geira Smart, er meðal keppenda í ár og við fylgjum henni eftir á meðan hún undirbýr sig og keppir á sinni fyrstu barþjónakeppni.Viðmælendur:Björg Elva FriðfinnsdóttirTeitur Riddermann SchiöthLeó Snæfeld PálssonRóbert Aron Garðarsson ProppéPétur Hafsteinn Kolka ÚlfssonVictoría Lazar SorinsdóttirÓlíver Goði Dýrfjörð Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more57minPlay
April 10, 2026ArkítektúrkennararnirVið erum ennþá í arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands. Í síðasta þætti vörðum tíma með nemendum. Í dag heyrum við í kennurunum. Hvernig takast kennarar í eina arkítektúrskóla landsins á við ábyrgðina að kenna arkítektum framtíðinnar að hugsa um arkítektúr. Eru tengsl milli akademíunnar og raunheimsins? Er LHÍ búbbla?Viðmælendur eru:Auður AtladóttirElísabet Auður GuðnadóttirÞuríður Guðrún PétursdóttirÞórdís Lind JónsdóttirArnbjörg Guðný AtladóttirAnna Sigríður JóhannsdóttirSahar G. Kvaran Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more54minPlay
March 27, 2026ArkítektúrnemarnirEr byggða umhverfið okkar ljótt? Hvernig lætur það okkur líða? Hvers vegna virðist fólk svona ósátt með nýbyggingar? Til að svara þessum spurningum leitum við á stað þar sem fólk hugsar mikið og gagnrýnið um arkítektúr: Arkítektúrdeild Listaháskóla Íslands.Við verjum deginum með fimm fimmta árs nemum í arkítektúr sem eru að keppast við að klára meistaraverkefnið sitt. Við ræðum við Evu Lind Elíasdóttur, Svövu Ragnarsdóttur, Kristrúnu Lárusdóttir Hunter, Unu Haraldsdóttur og Joan Tolentino.Aðrir viðmælendur:Þórdís DaðadóttirÍsabella ArnarsdóttirUrður Ýr ÞorsteinsdóttirEmilía ArnarsdóttirKaren Ósk MagnúsdóttirSaule Viktoría TyschenkoGuja Dögg Hauksdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more57minPlay
March 20, 2026DragfjölskyldutengslÍ þættinum verjum við tíma með dragdrottningunum Lolu von Heart og Chardonnay Bublée á meðan þær undirbúa dragsýninguna House of Heart á skemmtistaðnum Kiki, fræðumst um þetta áhugaverða listform og kynnumst dragsenunni í Reykjavík. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more57minPlay
March 13, 2026Bílaumboð og geópólitíkAf hverju myndu alþjóðleg glæpasamtök gera stórfellda tölvuárás á íslenskt bílaumboð? Til að svara þessari spurningu heimsækjum við Brimborg, framkvæmum ferilsrannsókn á tölvuárás á ónefnt íslenskt fyrirtæki og fræðumst um hópana sem standa að baki aðferðunum sem eru að gjörbreyta hinu geópólitíska landslagi. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more57minPlay
March 06, 2026FrúinSkjólstæðingar Frú Ragnheiðar nota vímuefni í æð, sumir eru heimilislausir, allir í mjög viðkvæmri stöðu. Við förum á vakt í Frúnni, bíl Frú Ragnheiðar sem keyrir um höfuðborgarsvæðið og veitir heilbrigðisþjónustu, nálaskipti og sálfélagslegan stuðning, og ræðum við sjálfboðaliðana og fólkið sem leitar í Frúnna. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information....more55minPlay
FAQs about Meðal fólks:How many episodes does Meðal fólks have?The podcast currently has 11 episodes available.