Meistaraverk Mozarts eru tíu systurþættir þáttaraðarinnar Mozart: Misskilinn snillingur sem er í umsjón Árna Heimis Ingólfssonar og má finna í þessari hlaðvarpsröð.
Fimmti þáttur: Verk sem Mozart samdi á árunum 1779 og 1780, sem voru síðustu árin sem hann var búsettur í fæðingarbæ sínum, Salzburg: Sinfónía nr. 34, 1. kafli (The English Concert, Trevor Pinnock, stj.); Krýningarmessan, Agnus Dei (Barbara Bonney, Catherine Wyn Rogers, Jamie MacDougall og Stephen Gadd, The English Concert, Trevor Pinnock stj.,), Ruhe sanft, mein holdes Leben (Sandrine Piau, Barokkhljómsveit Freiburgar, Gottfried van der Goltz, stj.); Sinfonia concertante fyrir fiðlu og víólu (Rachel Podger, Pavlo Besnoziuk, Hljómsveit upplýsingaraldarinnar).