Meistaraverk Mozarts eru tíu systurþættir þáttaraðarinnar Mozart: Misskilinn snillingur sem er í umsjón Árna Heimis Ingólfssonar og má finna í þessari hlaðvarpsröð.
Átundi þáttur: Leiknir kaflar úr píanókonsertum Mozarts, sem hann samdi á árunum 1785 og 1786 og þykja meðal merkustu verka hans í þessari grein: 1. þáttur úr píanókonsert nr. 20 í d-moll (Jan Lisiecki, Bæverska útvarpshljómsveitin, Christian Zacharias, stj.); 2. og 3. þáttur úr píanókonsert nr. 23 í A-dúr og nr. 24 í c-moll (Mitsuko Uchida, Enska kammerhljómsveitin, Jeffrey Tate, stj.).