2. september sl. lést gríska tónskáldið Mikis Theodorakis, 96 ára að aldri. Þátturinn verður helgaður honum. Hann var meðal annars þekktur fyrir tónlist sem hann samdi við kvikmyndina „Grikkinn Zorba“ árið 1964, en Theodorakis samdi tónlist af ýmsu tagi: söngva, balletta, sinfóníur og óperur. Andi grískrar þjóðlagatónlistar sveif oft yfir vötnunum í tónsköpun Theodorakis. Margir söngvar hans voru ádeilusöngvar, enda lifði Theodorakis mikla óróatíma í heimalandi sínu, Grikklandi. Hann lenti hvað eftir annað í fangelsi vegna stjórnmálaafskipta sinna og einkum voru ofsóknir á hendur honum miklar á tíma herforingjastjórnarinnar, 1967 til 1974, en þá var tónlist hans bönnuð í Grikklandi. Í þættinum verður lesið úr ævisögulegri bók Theodorakis, „Dagbók úr andspyrnuhreyfingu“ og einnig þýðingar Kristjáns Árnasonar og Böðvars Guðmundssonar á ljóðum við lög hans. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesarar eru Guðmundur Björn Þorbjörnsson og Jónatan Garðarsson.