Míó minn hundaspjall

Míó minn hundaspjall

Download on the App Store

Míó minn hundaspjall episodes

  • #09 Hundafréttir vikunnar

    Það var margt að frétta í vikunni. Hundaheimildamynd á RÚV, hundsbit, hundagerði og hundar í Kringlunni. Í þættinum fer ég yfir allar þessar fréttir og umræður um þær á samfélagsmiðlum. 

    14 min
  • #08 Hundagerði

    Guðfinna Kristinsdóttir er gestur þáttarins að þessu sinni. Guðfinna er einn stjórnenda Hundasamfélagsins á facebook, og er auk þess í stjórn Félags ábyrgra hundaeigenda. Við ræddum saman um hundagerðin í Reykjavík, meðal annars nýjasta gerðið á teikniborði Reykjavíkurborgar sem á að setja upp í Vesturbænum. Útfærslan á þeirri tillögu er vægast sagt umdeild, eins og við förum yfir í okkar spjalli. 

    Tillaga að breytingu deiliskipulags við Vesturbæjarlaug:

    https://reykjavik.is/sites/default/files/ymis_skjol/skipogbygg/skjol/vesturbaejarsundlaug_-_hofsvallagata_54_deiliskipul.-_og_skyringaruppdr.pdf

    Bréf FÁH til skipulagsfulltrúa:

    https://documentcloud.adobe.com/link/track?uri=urn:aaid:scds:US:3c0c335b-c6a7-451e-a56e-f6a5ad15150c

    41 min
  • #07 Covid-19 og hundahald

    Covid-19 er fyrst og fremst sjúkdómur sem við mannfólkið þurfum að berjast við, en áhrifanna gætir víða, og í þætti dagsins fer ég yfir hvernig Covid-19 hefur mögulega áhrif á hundahald. 

    13 min
  • #06 Hundavinir Rauða Krossins

    Rauði Krossinn í Kópavogi hefur verið með verkefnið "Heimsóknarvinur með hund" síðastliðin 10 ár. Verkefnið er afskaplega vinsælt, enda gleður það flesta að fá ferfætta loðna vini í heimsókn. 

    Í þessum þætti kíki ég í eina slíka heimsókn og spjalla við Rakeli Árnadóttur og Elísabetu Esther Sigurðardóttur. Síðar í þættinum slæ ég svo á þráðinn til Rauða Krossins og heyri í Sigríði Ellu Jónsdóttur, verkefnastjóra Hundavinaverkefnisins. 

    Rauði Krossinn - Hundavinir

    24 min
  • #04 Hundahald og Flokkur fólksins

    Nokkrir stjórnmálamenn eru farnir að sýna málefnum hundaeigenda áhuga, og einn þeirra stjórnmálamanna er Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks Fólksins. Hún hefur meðal annars lagt þá tillögu fram í borgarráði að fella niður hundaleyfisgjald þeirra öryrkja og eldri borgara sem halda hund. Ég fékk að spjalla við Kolbrúnu um þessa tillögu og ýmislegt fleira sem tengist hundahaldi og hundaleyfisgjöldum. 

    https://kolbrunbaldurs.is/

    42 min
  • #03 Innflutningur gæludýra til Íslands

    Drög að nýrri reglugerð um innflutning hunda og katta leit dagsins ljós rétt fyrir jól. Það fór því miður framhjá mörgum, meðal annars þáttastjórnanda, að frestur til umsagna var aðeins til dagsins í dag, 3.janúar 2020. Eftir að hafa snarað í umsögn fyrir hönd Félags ábyrgra hundaeigenda, hafði ég samband við Þorgerði Ösp Arnþórsdóttur og bað hana um að koma í spjall um þessa nýju reglugerð um innflutning hunda og katta. 

    Samráðsgáttin

    Skýrsla MAST: Endurmat á skilyrðum fyrir innflutningi hunda og katta

    Dr.Preben Willeberg: Nýtt áhættumat 2019

     

    1 hr 2 min
  • #02 Hunda-valfag í grunnskóla

    Annar þáttur Hundaspjallsins og gestur þáttarins er Halldóra Lind Guðlaugsdóttir. Hún er kennari, hundaþjálfari og hundaatferlisfræðingur, og kennir nokkurs konar hunda-valfag í Hraunvallaskóla. Ég var forvitin og vildi vita meira um þessa hundakennslu fyrir grunnskólanemendur, svo ég bauð henni heim til mín í spjall - hundaspjall. Við fórum út um víðan völl, ræddum um bakgrunn Halldóru sem hundaþjálfari og margt fleira. 

    1 hr 3 min
  • #01 Fyrsti þáttur

    Fyrsti þáttur hundaspjallsins hefst á sögu af hundinum Sako og unglingsdrengnum Joseph. 

    Þar næst kynnir þáttastjórnandinn, Freyja Kristinsdóttir, þáttinn og röflar svo eitthvað um sjálfa sig. 

     

    Míó Minn Hundaspjall á Facebook

    27 min

About Míó minn hundaspjall

From the publisher's feed

Hlaðvarpsþáttur um hundatengd málefni. Umsjónarmaður er Freyja Kristinsdóttir dýralæknir og hundaþjálfari.