Morgunkaffið í beinni útsendingu frá Slippbarnum við Mýrargötu í Reykjavík. Fjöldi gesta lítur í heimsókn: Hljómsveitirnar Sykur, Between Mountains og Vök. Fannar úr Hipsumhaps leit við og einnig rithöfundarnir Bragi Páll Sigurðsson og Bergþóra Snæbjörnsdóttir sem eru nýbakaðir foreldrar og bæði með bók þessi jólin.