Á degi íslenskrar tungu leikur Morgunkaffið eingöngu lög sem sungin eru á íslensku. Gerð er sérstök leit að slíkum lögum sem sungin eru af fólki sem ekki hefur íslensku sem móðurmál, hlustendur senda inn hugmyndir. Auður Jónsdóttir rithöfundur og Halldór Halldórsson, Dóri DNA líta í heimsókn og ræða um bækur sínar og leikverk og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Einar Þorsteinsson líta við og ræða loftslagsmál.