Björg og Gísli Marteinn voru í banastuði á þessum ágæta laugardagsmorgni þegar tveir mánuðir eru til jóla, takk fyrir! Barnahornið datt inn sem og umræður um póstnúmer og ýmislegt fleira æsispennandi. Gestir dagsins að þessu sinni voru þau Ari Bragi Kárason, trompethöfðingi og Íslandsmethafi í 100 m spretthlaupi karla og Júlíana Sara Gunnarsdóttir leikkona sem var að frumsýna aðra seríu af Venjulegu fólki í vikunni. Gleði og gaman, íþróttir, leiklist, útlönd og afturendar!
Við heyrðum líka í Matthíasi Má kollega okkar sem var staddur á Húsavík í tilefni listviðburðar sem tengist jóga og tónlist.