Morgunkaffið er svart og sykurlaust í dag þótt sólin hækki á lofti. Til að lyfta andanum eru spiluð lög sem eru svokallaðar neglur og koma blóðinu á hreyfingu. Listafólkið Saga Sigurðardóttir og Valdimar Guðmundsson sem sækja orku til æskustöðva á Suðurnesjum, Þingvöllum, Skálholti og víðar koma með sína sjarmerandi framkomu og barmafull af hæfileikum og deila með okkur sigrum og sorgum.