Björg Magnúsdóttir og Gísli Marteinn Baldursson fóru yfir víðan völl í Morgunkaffinu. Gísli Marteinn var nýkominn úr Borgarfirðinum og þau fóru yfir færð á vegum og veður víða um land. Fólk sem sá til sólar var hvatt til að hringja inn og það stóð heima, allir þeir sem höfðu samband sögðust vera í bongóblíðu. Oddaflug frá klukkan 11 með tónlist sem jafnast á við það besta sem spilað er á hinum Norðurlöndunum.