Morgunkaffið var á sínum stað í dag, 11. janúar. Björg Magnúsdóttir og Helgi Seljan voru á vaktinni að þessu sinni, í fjarveru Gísla Marteins. Gestir þáttarins voru leikskáldið Tyrfingur Tyrfingsson, sem er nú búsettur í Amsterdam og ritlistarneminn Ugla Egilsdóttir. Á næstunni verður frumsýnt nýtt leikrit eftir Tyrfing, Helgi Þór rofnar í Borgarleikhúsinu. Það mál var rætt sem og ýmislegt fleira, meðal annars reiprennandi frönskukunnátta Uglu og skiptinám hennar í París.