Fríhöfnin

Mozart: Misskilinn snillingur 3/10


Listen Later

Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesarar með Árna Heimi eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Jóhann Sigurðarson. Í þriðja þætti er fjallað um árin sem Mozart bjó í Salzburg þegar hann var um tvítugt, óánægju hans með tónlistarlíf bæjarins og þrá hans eftir að komast burt. Einnig er fjallað um persónuleika Mozarts, ekki síst bréf sem bregða ljósi á óvænta kímnigáfu hans. Meðal verka sem hljóma í þættinum eru brot úr sinfóníum í g-moll og A-dúr, píanó- og fiðlukonsertum, og einnig verkið Tónlistargrín (Ein musikalischer Spass) þar sem Mozart gerir grín að vanhæfum tónlistarmönnum með ýmsu móti.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV