Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesarar með Árna Heimi eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhann Sigurðarson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Í fjórða þætti er fjallað um örlagaríka ferð Mozarts til Mannheim og Parísar á árunum 1777-78. Þar hugðist hann finna fasta stöðu en allt fór öðruvísi en ætlað var, honum bauðst ekkert starf og móðir hans lést í París eftir stutt veikindi. Að kröfu föður síns sneri hann aftur heim til Salzburgar, en tónlistin sem hann samdi þetta ár er um margt dekkri og átakameiri en það sem hann hafði áður gert.