Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesari með Árna Heimi er Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Fjallað er um síðustu ár Mozarts í þjónustu erkibiskupsins í Salzburg, óperuna Idomeneo sem markaði tímamót á ferli hans sem óperutónskálds, og þá ákvörðun hans að freista gæfunnar og gerast sjálfstætt tónskáld í Vínarborg.