Fríhöfnin

Mozart: Misskilinn snillingur 8/10


Listen Later

Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesarar með Árna Heimi eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Í áttunda þætti er fjallað um óperurnar Brúðkaup Fígarós og Leikhússtjórann, sem Mozart samdi árið 1786. Einnig er fjallað um samtímamann Mozarts í Vínarborg, ítalska tónskáldið Antonio Salieri, samskipti þeirra og lífseigan orðróm þess efnis að Salieri hafi átt þátt í dauða Mozarts. Meðal annars hljóma í þættinum aríur úr Brúðkaupi Fígarós, tónlist eftir Antonio Salieri og brot úr óperu sem rússneska tónskáldið Rimskí-Korsakoff samdi og ber heitið „Mozart og Salieri".
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

FríhöfninBy RÚV