Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesarar með Árna Heimi eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. Í níunda þætti er fjallað um líf og störf Mozarts á árunum 1787-90, sem voru kreppuár í Vínarborg og mikill vandræðatími fyrir sjálfstætt starfandi tónskáld eins og Mozart. Rakin verða fjárhagsvandræði hans og lesið upp úr bréfum sem hann ritaði vini sínum í frímúrarareglunni með örvæntingarfullum beiðnum um lán. Einnig verður fjallað um nokkur helstu meistaraverk Mozarts sem urðu til á þessum árum, til dæmis óperuna Don Giovanni og síðustu sinfóníur hans.