Wolfgang Amadeus Mozart er einn kunnasti tónsnillingur sögunnar. Tónlist hans er flutt um allan heim á degi hverjum og sögur um snilligáfu hins barnunga Mozarts eru flestum kunnar. Sumir telja að hann sé eitt mesta tónskáld sem heimurinn hefur eignast, öðrum þykir tónlist hans klisjukennd og yfirborðsleg. Árni Heimir Ingólfsson leiðir hlustendur í allan sannleikann um undrabarnið Mozart en einnig um hinn fullþroskaða listamann, um vonbrigði hans og sigra. Fjallað er um stormasamt og flókið samband Mozarts við föður sinn, en einnig um samskipti hans við samtímamanninn Antonio Salieri sem lengi hafa verið mönnum hugleikin. Lesarar með Árna Heimi eru Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Halla Oddný Magnúsdóttir. 10. þáttur: Sálumessa og dauði (1791)
Í tíunda og síðasta þætti er rakinn ferill Mozarts og tónsmíðar hans árið 1791, sem var síðasta árið sem hann lifði. Meðal annars verður staldrað við óperuna Töfraflautuna, kórperluna Ave verum corpus, og ekki síst Sálumessuna sem Mozart entist ekki aldur til að ljúka við. Lesið verður úr bréfum Mozarts og úr endurminningum mágkonu hans um síðustu nóttina sem hann lifði, og einnig verður grafist fyrir um hvert var banamein Mozarts.