Á tónsviðinu

Mozart og Colloredo biskup


Listen Later

Mestallan áratuginn 1772 til 1781 var hinn ungi Wolfgang Amadeus Mozart hirðtónlistarmaður hjá Colloredo erkibiskupi af Salzborg. Þeim Mozart gekk hins vegar illa að þola hvor annan og fór svo að lokum að upp úr sauð á milli þeirra. Vist Mozarts hjá erkibiskupnum lauk með því að ráðsmaðurinn, Arco greifi, hrinti Mozart út um dyrnar og sparkaði í bakhlutann á honum. Sagt verður frá samskiptum Mozarts við erkibiskupinn og hirðmenn hans, lesnir kaflar úr bréfum Mozarts og flutt tónverk eftir hann sem tengjast erkibiskupnum. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Kristján Guðjónsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

Á tónsviðinuBy RÚV