Myndugleikinn

Myndugleikinn

By MyndugleikinnEducationSelf-Improvement
Download on the App Store

Myndugleikinn episodes

  • JólaMyndugleikinn

    Í þessum síðasta þætti ársins ræðum við jólahavaríið sem við týnum stundum sjálfum okkur í, lélegar (stundum hrikalegar) jólagjafir frá vinnustöðum og hvernig við getum haldið í jólagleðina.

    Takk fyrir samfylgdina á árinu kæra Myndugleika samfélag. Hlökkum til fleiri samtala á nýja árinu!

    57 min
  • Life hacks í uppeldi

    💥Í þessum þætti tókum við djúpt trúnó og life hack spjall um það allra mikilvægasta, erfiðasta og skemmtilegasta ❤

    Uppeldi og góð ráð til að hakka foreldrahlutverkið með ást, kærleika og sjálfsást 🤌🥰

    1 hr 13 min
  • 5 tips til að láta í þér heyra á fundum!

    Erum við ekki öll sammála um að illa skipulagðir fundir séu samfélagsmein? 

    Þrátt fyrir það er vinnudagurinn oft vel pakkaður af alls konar fundum. Í þætti dagsins ræðum við um 5 hagnýt ráð til þess að mæta full af sjálfsöryggi á fundi og til þess að láta í þér heyra.




    58 min
  • LIFE HACKS

    Hver elskar ekki góð life hacks?

    Í þessum þætti deilum við okkar uppáhalds life hacks sem við höfum viðað að okkur í gegnum tíðina. Allt frá sparnaðarráðum, skipulagstipsum og morgunrútínu yfir í búkonuhárin bansettu sem ásækja okkur!

    58 min
  • Kamala Harris og kosningarnar um réttindi kvenna

    Myndugleikinn heldur áfram að lína upp brat-listanum með næsta stórkostlega viðmælanda - Dr. Maríu Rún Bjarnadóttur. Við erum í skýjunum með að fá þessa NEGLU í þáttinn til að kafa ofan í kosningarnar í Bandaríkjunum, þar sem Kamala Harris og mannréttindi kvenna eru eitt helsta kosningamálið. Kosningarnar eiga sér stað eftir aðeins 7 daga. 

    María Rún er með doktorsgráðu í lögfræði frá University of Sussex og starfar sem nýsköpunar- og stefnumótunarstjóri hjá embætti ríkislögreglustjóra. Þar vinnur hún m.a. að þróunarverkefni um innleiðingu gervigreindar í starfsemi embættisins og meðferð stafrænna brota. Ekki nóg með það - hún er formaður Grevio-nefndar Evrópuráðsins og heldur utan um aðdáendaklúbb Ruth Bader Ginsburg á Íslandi. 

    Í þessum þætti köfum við djúpt ofan í stöðu kosninganna í Bandaríkjunum, ræðum áhrif the biggest brat of all; Kamölu Harris og hvað er í húfi fyrir réttindi kvenna um allan heim. Hvernig munu þessar kosningar móta næstu kynslóð?

    58 min
  • Mannlegir vinnustaðir sem styðja við konur

    Eins og þið getið rétt ímyndað ykkur er fyrsti viðmælandinn sem fær boð í Myndugleikann algjör negla! Við bjóðum the brat Ásdísi Eir Símonardóttur, vinnusálfræðing með meiru, innilega velkomna!

    Ásdís er sjálfstætt starfandi stjórenda- og mannauðsráðgjafi með yfir 13 ára reynslu, og hefur unnið bæði hjá sprotafyrirtækjum, í orkugeiranum og hjá hinu opinbera. Hún er líka fyrrum formaður Mannauðs og brennur fyrir vinnustöðum sem skila árangri.

    Í þessum þætti, sem er helgaður 9-5, mannlegri vinnustaðamenningu og teymisvinnu sem styður við konur.

    Við erum ískrandi spenntar að fá Ásdísi í þáttinn - þetta er spjall stútfullt af ráðum, tips og tricks sem enginn má missa af.

    58 min
  • Græn flögg í vináttu <3

    Þáttur vikunnar er tileinkaður einu því allra allra mikilvægasta sem við eigum, VINKONUM OG VINUM! Stuðningskerfinu sem er til staðar í gegnum súrt og sætt.. einmitt eins og samfélagið sem okkur dreymir um að byggja upp með Myndugleikanum.

    Við ræðum um græn flögg í vináttum, hvað það er við djúp og djúsí vináttusambönd sem gerir þau svo dýrmætu, með örlitlu tea um Diddy on the side (hvað er nú í gangi þar!).

    49 min
  • Myndugleikinn is back!

     Sería tvö af Myndugleikanum er komin í loftið eftir óteljandi fyrirspurnir og vangaveltur hlustenda um hvað sé næst! Við erum mættar aftur tvíefldar eftir sumarfrí…þakklátari fyrir rútínu haustsins en nokkru sinni fyrr 👏

    Í þessum þætti förum við yfir:

    -Hvað er næst hjá Myndugleikanum

    -Sjálfsmildi og f@^% fullkomnunaráráttuna

    -Kaflaskil og kaflalok, hversu einmannaleg og stórkostleg þau geta verið!

    -Hvað það þýðir að velja sjálfa sig

    -Tattoo-mission?

    …og margt margt fleira! 

    43 min
  • Við elskum mistök!

    Nýjasti þáttur Myndugleikans er óður til mistaka, vandræðalegra uppákoma og fólksins sem stigur inn í slíkar stundir með okkur án þess að dæma (það á við okkur sjálfar líka!). Hann heitir þess vegna "Við elskum mistök.” Í góðum samböndum, vináttu og teymum brettir fólk upp ermar þegar mistök eiga ser stað, án þess að dreifa skömm og gagnrýni - ein fyrir allar og allar fyrir eina! Í þættinum deilum við líka vandræðalegustu stundunum okkar og ræðum hversu dýrmæt slík augnablik geta verið raun og veru ef við leyfum okkur að hlægja og taka hlutunum ekki of alvarlega! ;)


    42 min

About Myndugleikinn

From the publisher's feed

Myndugleikinn er hugarfóstur Önnu Margrétar og Hjördísar Evu, sem báðar deila brennandi ástríðu fyrir því að læra, ræða og miðla þekkingu og reynslu til kvenna sem styður þær í að lifa lífi…