
Sign up to save your podcasts
Or


NÁVÍGI (S02/E10) ÁSKORUN
Tíundi þáttur af Návígi er kominn í loftið.
Samstarfsaðilar Návígi eru:
NÁVÍGI (S02/E09) Hilmar Björnsson
Níundi þáttur af Návígi er kominn í loftið.
Hilmar Björnsson er reyndasti framleiðandi landsins í gerð íþróttaefnis.
Meðal efnis:
Þetta og fleira áhugavert í níunda þætti Návígis!
NÁVÍGI (S02/E08) Þóra Tómasar - Helga Lára safnstjóri RÚV - Þórhallur Gunnarsson
Áttundi þáttur af Návígi er kominn í loftið.
Þóra Tómasdóttir fylgdi eftir kvennalandsliðinu í knattspyrnu frá 2007-2009 og gerði heimildamyndina Stelpurnar okkar. Þóra fjallar um gerð myndarinnar, menntun sína í heimildaþáttagerð og hina ólæknandi bakteríu að vilja miðla og segja sögur.
Helga Lára Þorsteinsdóttir er safnstjóri Rúv. Hún fræðir okkur um hlutverk og stöðu safnsins og nefnir dæmi um merka fundi safnsins síðasta vetur.
Að lokum ræðir reynsluboltinn Þórhallur Gunnarsson um stöðu sjónvarpsþáttagerðar og varpar ljósi á gríðarlegar vinsældir hlaðvarpa um þessar mundir.
NÁVÍGI (S02/E07) Freyr Árnason
Freyr Árnason fer fyrir framleiðslufyrirtækinu Obbosí ehf sem hefur klippt og séð um eftirvinnsluna á stóru seríum Stöðvar 2 Sport (Sýn) síðastliðin ár. Freyr er einnig hægri hönd Emmsjé Gauta til margra ára og komið m.a. að Julevenner jólasýningu hans. Knattspyrnulið FH er það lið sem gerir bestu myndböndin fyrir samfélagsmiðla og þar er Freyr sem fer fyrir öflugu teymi sem framleiðir þau.
Meðal efnis:
Þetta og margt margt fleira.
NÁVÍGI (S02/E06) Garðar Örn & Siggi Már
Þetta og margt margt fleira.
Umsjón: Gulli Jóns
NÁVÍGI (S02/E05) Arnar Gull vs Óskar Hrafn (ballið byrjar)
sérstakur gestur: Gummi Ben
Í þætti fimm gerum við upp einvígi Arnars og Óskars á árunum 2021-2023.
Þeir félagar sendu hvor öðrum pillur í viðtölum í hvert sinn sem færi gafst. Við ræðum bæði við Arnar og Óskar um þessi ár. Gerðu þessi átök þá að betri þjálfurum? Var þeim illa við hvorn annan? Saknar Óskar þess að hafa Arnar ekki í Bestu deildinni?
Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar
N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA
Arnar Gull vs Óskar Hrafn (fyrri hluti)
Sérstakur gestur: Gummi Ben
Fjórði þáttur í nýrri seríu af Návígi er kominn í loftið. Nýtt þema; Arnar Gunnlaugs og Óskar Hrafn. Flestir þekkja þeirra slag sem þjálfarar Breiðabliks og Víkings en færri vita að fyrst lágu leiðir þeirra saman fyrir rúmum 35 árum. Farið verður yfir þeirra sögu sem andstæðingar á vellinum bæði í yngri flokkum sem og í meistaraflokki. Þá skoðum við fyrstu skref þeirra félaga í þjálfun, Arnar hjá ÍA og Óskar hjá Gróttu.
Meðal efnis:
Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar
Samstarfsaðilar Návígi eru:
BJARKI GULL & MENNSKAN II
Þáttur þrjú í nýrri seríu af Návígi.
Bjarki Gunnlaugs er gestur þáttarins og heldur áfram að ræða sína reynslu úr atvinnumennsku í fótbolta. Þetta er seinni þátturinn með Bjarka þar sem við einblínum meira á hans feril í og sérstaklega veru hans hjá Preston þar sem ungur knattspyrnustjóri David Moyes var að stíga sín fyrstu skref.
BJARKI GULL & MENNSKAN
Þáttur tvö nýrri seríu af Návígi. Nú verður slegið í klárinn!
Að þessu sinni er umboðsmaðurinn og fyrrverandi knattspyrnuhetja, Bjarki Gunnlaugsson gestur þáttarins. Bjarki ræðir atvinnumennsku í fótbolta í víðum skilningi, bæði sína eigin og annarra. Óhætt er að segja að Bjarki hafi farið á flug og því nauðsynlegt að skipta spjallinu upp í tvo þætti. Sá fyrri er hér.
Umsjón: Gulli Jóns og Hjörtur Hjartar
Nýtt hlaðvarp á gömlum grunni! Kominn er í loftið nýr og brakandi ferskur þáttur af Návígi- vel virtu hlaðvarpi sem fyrst leit dagsins ljós árið 2018.
Umsjónarmaður, sem fyrr, er Gunnlaugur Jónsson en í þessari seríu er honum til halds og trausts, Hjörtur Hjartarson.
Sú sería sem er á leið á öldur ljósvakans er einskonar hliðarverkefni frá sjónvarpsþáttaseríunni, A&B sem nýverið var sýnd á Stöð 2 og sló heldur betur í gegn. Í það minnsta var það upphaflega konseptið. Það stækkaði hinsvegar og fór í margar óvæntar áttir. Meira um það síðar. Fyrsti þátturinn heitir Akranes.
Þar er farið um víðan völl og saga ÍA, Akraness, tvíburanna og meðreiðarsveina rifjuð upp. Við heyrum í fjölmörgum kempum sem færa okkur 20, 30 og jafnvel 40 ár aftur í tímann.
N1 - ASKJA - LANDSBANKINN - IKEA
From the publisher's feed