Sérfræðingurinn fékk þá Theodór Inga Pálmason og Ásgeir Jónsson til að fara yfir þá leiki sem búnir eru í 2. umferð Olís-deild karla.
Við fengum allt sem hægt er að fá í þessari umferð. Háspenna lífshætta, ótrúlegustu úrslit í manna minnum og nýtt lið í efstu deild í fyrsta skipti.
Bjarni Fritzson þjálfari ÍR var í símaviðtali í upphafi þáttar og í lok þáttar ræddu strákarnir um ótrúlegar þolkröfur dómara fyrir tímabilið sem einhverjir myndu líkja við leikþátt.