Reykvíkingar dagsins í dag ljá Reykvíkingum frá árinu 1918 rödd sína og lesa valda texta frá því ári. Í þessum þætti les Þóra Björk Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Safnaráðs úr fundargerð Kvenréttindafélagsins frá 11. mars 1918 en undir hana skrifa Bríet Bjarnhéðinsdóttir og Guðfinna Gísladóttir. R1918 er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Landsbókasafnsins og RÚV. Textavinna: Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn og Bjarni Jónsson.