
Sign up to save your podcasts
Or


Sendu okkur skilaboð!
Kæra Pyngjusamfélag! Allt tekur enda og þar er Pyngjan engin undantekning. Þetta hafa verið 3 ánægjuleg ár en nú, eftir 268 þætti, mætast þeir Addi og Iddi í hinsta sinn fyrir aftan míkrófóninn. Við viljum þakka ykkur öllum kærlega fyrir hlustunina í gegnum árin - heiðurinn er án nokkurs vafa okkar megin. Megi Pyngjur ykkar þyngjast á komandi tímum, fjárfestingar bera ávöxt og krónurnar vinna fyrir ykkur. Eitt er víst; Hin eina sanna Pyngja er nú tæmd. Guð blessi ykkur.
Sendu okkur skilaboð!
Þá er komið að síðasta ársreikningaþætti Pyngjunnar og því þriggja ára vegferð að ljúka. Það kom því ekkert annað til greina en að taka fyrir House of SKEL en svo þurftum við auðvitað að leita í ræturnar og gefa út þátt í anda upphaflegrar Pyngju sem innihélt tvo ársreikninga. Því ákváð Iddi að taka fyrir Lifandi vísindi sem er ansi skemmtilegur rekstur. Við viljum þakka öllum kærlega fyrir hlustunina á ársreikningaþættina okkar s.l. þrjú ár - it's been one hell of a ride!
Lifandi vísindi - 8:05
SKEL - 45:15
Sendu okkur skilaboð!
Kæru vinir Pyngjunnar. Þetta mun verða okkar næstsíðasta Föstudagskaffi og því er vel við hæfi að hafa það í lengri kanntinum. Þessi þáttur er gjörsamlega stappaður af viðskipti og vitleysu. Eigið yndislega helgi!
Sendu okkur skilaboð!
Kæru hlustendur Pyngjunnar! Þá er komið að næstsíðasta ársreikningaþættinum okkar og það er enn eitt ríkisapparatið. Þó lítur út fyrir að vel sé haldið á spöðunum hjá Isavia, ólíkt mörgum öðrum eignum í eigu ríkisins. Saga er sjón ríkari!
Sendu okkur skilaboð!
Já þið heyrðuð rétt, kæru vinir. Pyngjan er á leið í frí - langt frí! Við munum þó dæla í ykkur P-vítamíni út febrúar svo í guðanna bænum verið með okkur þangað til. Þáttur dagsins er einn af þessum klassísku, fréttir, tuð, umfjöllun og hagnýtur fróðleikur.
Sendu okkur skilaboð!
Í dag tökum við fyrir sögu og rekstur Brims sem er eitt stærsta útgerðarfélag landsins. Iddi droppar alvöru value bombum hægri, vinstri, enda sérfræðingur í þessum efnum.
Sendu okkur skilaboð!
Kæru hlustendur Pyngjunnar! Við óskum ykkur góðrar helgar og gleðilegs árs. Ef þú ert launþegi er ekkert nema launað frí í vændum svo ekki fara að stofna þinn eigin rekstur á þessu ári. Góðar stundir.
Sendu okkur skilaboð!
Hið hreinasta hreinlæti er næst á dagskrá. Bjarni Ármanns virðist sjá í framtíðina og er ótvíræður keisari hreinlætis á Íslandi. Við förum yfir söguna, næyjasta ársreikning og fleira til í dag. Góða helgi.
Sendu okkur skilaboð!
Það hlaut að koma að því! Geitin sjálf, Tóti Páls kíkti á okkur upp í Seðlabanka Kópavogs og settist á bakvið míkrófóninn. Í þættinum kynnumst við manninum og förum á hundavaði yfir sögu hlutabréfa á íslandi en sjálfur hefur Tóti séð tímanna tvenna í þeim efnum. Stórkostlegur þáttur sem, eins og svo oft áður, enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Gleðilegt nýtt ár, kæru kúrekar!
Sendu okkur skilaboð!
Við fengum til okkar fyrrum hlutabréfamiðlarann Helga Frímannsson sem hefur vakið mikla og verðskuldaða athygli fyrir greiningar á hlutabréfum á launþegaforritinu LinkedIn á árinu. Við fórum í manninn sem á langan feril að baki í heimi fjármála og auk þess gerðum upp árið 2024. Sannkölluð áramótasprengja fyrir ykkur, kæru kúrekar. Það verður bjart yfir 2025!
From the publisher's feed
Pyngjan er viðskiptamiðað hlaðvarp þar sem fréttir, fróðleikur og vandaðar umfjallanir eru í fyrirrúmi. Þættirnir koma út á föstudögum og eru sem ljós í enda ganganna hjá hinum almenna launþega og…

139 Listeners

215 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

91 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

27 Listeners

29 Listeners

22 Listeners

20 Listeners

13 Listeners

13 Listeners

27 Listeners

12 Listeners