Ræðum það...

Ræðum það...

By Andrés JónssonBusiness
Download on the App Store

Ræðum það... episodes

  • #606 "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

    "Hæfni ekki náð. Fjólublár - verk í vinnslu"

    Gestir sjötta þáttar í sjöttu seríu af Ræðum það... eru Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Sverrir Páll Einarsson formaður Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.


    Umræða þáttarins er um hvort ríkisstjórnin sé vinsamleg gagnvart framtakssemi eða pro-business


    Einnig er rætt um leigubremsu, hvort mál séu ekki að koma fram í þinginu og hvort skattar á ferðaþjónustuna séu hækkaðir án fyrirvara eða séu stefna sem legið hafi fyrir lengi.


    ---


    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020. 

    Stjórnandi er Andrés Jónsson




    41 min
  • #605 Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

    Áhrif mállíkana meiri á ferðaþjónustu á Íslandi

    Gestir eru Daði Guðjónsson hjá Íslandsstofu og Arna Gunnur Ingólfsdóttir hjá Advania.

    Þá kom Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur HMS, og ræddi um meint áhrif leigubremsu á framboð á húsnæðismarkaði.

    Í lok þáttar kom Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri skráninga hjá Kauphöll Íslands og ræddi um íslenska hlutabréfamarkaðinn, sameiningar lífeyrissjóða og fleira.

    Ræðum það... er í boði Mynstur.

    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta um viðskipti og atvinnulíf og hefur verið gefið út frá árinu 2020. 

    Stjórnandi er Andrés Jónsson


    1 hr
  • #604 Landsvirkjun og brotthvarf Harðar

    Í hlaðvarpi vikunnar í Ræðum það… er rætt um arfleifð Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun, pólitíska og efnahagslega þýðingu fyrirtækisins og þróun stjórnarhátta þar með Höllu Hrund Logadóttur þingmanni Framsóknarflokksins og fyrrum orkumálastjóra og Helga Hjörvar fyrrverandi borgarfulltrúa og þingmanni Samfylkingarinnar sem sat í stjórn Landsvirkjunar til ársins 2006.


    Einnig fjöllum við um viðbrögðin við spillingarmáli Manchester City í ensku úrvalsdeildini og hvernig eigendur og stjórnendur liðsins hafa nálgast PR-málin með Jóni Kaldal blaðamanni og almannatengslaráðgjafa.

    38 min
  • #603 - Hallalaus fjárlög eða hvað?

    Hallalaus fjárlög eða hvað? 


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar og Árni Helgason þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Við fengum þau til að ræða hvers konar signal ríkisstjórnin sendir með hallalausu fjárlagafrumvarpi og hversu miklar líkur séu í raun á hallalausum ríkisrekstri á næsta ári.


    Viðtalið:

    Margréti Ormslev Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Ligo, er í viðtalinu og ræðir nýtingu gervigreindar fyrir innviði eins og fasteignir og frárennslislagnir.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins fórum við yfir umræðu um samsetningu eignarhalds fyrirtækja í kauphöll Íslands með Herði Ægissyni, ritstjóra Innherja. Við ræðum hvernig sambúðin milli stórra stofnanafjárfesta og einkafjárfesta þurfi að þróast til að stuðla að meiri veltu og aukinni þátttöku nýrra fjárfesta í kauphöllinni. Eitthvað sem er reyndar líka stórt hagsmunamál almennings.


    ----


    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.


    Ræðum það... fjallar vikulega um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Þetta er snarpt videó-hlaðvarp með puttann á púlsi umræðunnar og nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir eru forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum. 


    Stjórnandi er Andrés Jónsson

    1 hr 21 min
  • #602 - Hvarf sjónvarpsfrétta, sala til Replit og kólnandi byggingamarkaður


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar og Kolbeinn Marteinsson ráðgjafi hjá Athygli.


    Viðtalið:

    Viktor Margeirsson og Gunnar Kolbeinsson, stofnendur Test 13 voru í viðtali.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins ræddum við að þessu sinni byggingamarkaðinn, vexti og hallalaus fjárlög við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing HMS.


    Ræðum það... er í boði Mynstur.


    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.

    Ræðum það... er vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.


    Stjórnandi er Andrés Jónsson


    56 min
  • #601 - Gagnaver, gervigreind og fjárfestingar

    NÝ SERÍA - Ræðum það... rúllar af stað af ný.


    Hringborð atvinnulífsins:

    Við hringborðið í dag eru Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun, Magnús Bjarnason ráðgjafi og eigandi MAR advisors. Við fengum þau til að ræða sögu íslenska gagnaversiðnaðarins og hvaða frekari tækifæri eru fyrir Íslands á því sviði.


    Viðtalið:

    Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, er í viðtalinu og ræðir nýja strategíu og fjárfestingar Nova.


    Hitamælirinn:

    Í hitamæli viðskiptalífsins skyggndumst við inn í umræðuna á bakvið fréttafyrirsagnir vikunnar með Þorsteini Friðriki Halldórssyni, ritstjóra Hluthafans.


    Ræðum það... verður eftirleiðis vikulegt videó-hlaðvarp um viðskipti, efnahagsmál og opinbera stefnumörkun. Vandað og uppbyggilegt en líka snarpt og með puttann á púlsi umræðunnar.

    Við munum grípa umræðu sem tengist nýlegum fréttafyrirsögnum í viðskiptalífinu. Gestir verða aðallega forystufólk í atvinnulífinu en líka glöggt fólk með góða innsýn í umræðuefnin sem er ekki tíðir gestir í hlaðvörpum. 


    ----

    Ræðum það... er hlaðvarp Góðra samskipta og hefur verið gefið út frá árinu 2020.


    Stjórnandi er Andrés Jónsson









    59 min
  • #511 Mun gervigreindin dæma okkur?

    Mun gervigreindin dæma okkur?

    Í þessum ellefta þætti 5 seríu spjalla ég um gervigreind við þau Stefán Baxter hjá Snjallgögnum, Thelmu Christel Kristjánsdóttur hjá Jónsbók og Tinna Kára Jóhannesson hjá Wise

    Tinni er jafnframt fyrrum samstarfsfélagi minn hjá Góðum samskiptum og meðstofnandi Ræðum það...

    ---

    Við erum líka á ⁠https://raedumthad.substack.com⁠ - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til.

    —

    Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið.

    Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson*

    (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.

    32 min
  • #510 Er Ísland opið fjárfestum?

    Er Ísland opið fjárfestum?


    Í þætti vikunnar ræða Margrét Ormlev Ásgeirsdóttir, rekstrarráðgjafi hjá Ormslev Advisory og Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair Ísland, um atvinnustefnuna sem oddvitar ríkisstjórnarflokkanna kynntu á blaðamannafundi á föstudaginn. Bæði hafa þau um árabil haft milligöngu um aðkomu erlendra fjárfesta að orkuuppbyggingu og grænum orkuverkefnum hér á landi og þekkja hversu langt og flókið ferli það getur verið.

    Tilkynningarskyldan: Þau þekktust ekki fyrir þennan þátt.

    Við erum líka á https://raedumthad.substack.com - fáið tilkynningar um nýja þætti og meira til.

    —

    Ræðum það… er spjallþáttur um atvinnulífið.

    Þátturinn hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson*

    (*)Efnistök eru alfarið óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á gestum forðumst við alla hagsmunaárekstra.

    31 min
  • #509 Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?

    Kunna íslensk fyrirtæki ekki að selja?


    Hringborð atvinnulífsins: Georg Lúðvíksson framkvæmdastjóri Spesíu og Rakel Guðmundsdóttir, eignarhaldsstjóri Alfa Framtaks ræddu afhverju íslensk fyrirtæki eru aftarlega á merinni þegar kemur að skipulögðu sölustarfi.


    Hreyfingalistinn - fréttir vikunnar: Þorsteinn Friðrik Halldórsson ritstjóri Hluthafans og Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, ráðgjafi ræddu um lokun Brunns á þriðja framtakssjóði sínum, verðhrun skráðra hugbúnaðarfyrirtækja vestan hafs, tilslakanir Seðlabankans varðandi skýrslugerð fjármálafyrirtækja og nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um að hækka viðmið varðandi kaupauka starfsmanna verðbréfafyrirtækja.


    ————


    Við erum líka á https://raedumthad.substack.com


    Ræðum það… er spjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti.


    Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson


    (*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra.


    39 min
  • #508 Gervigreind á fjármálamarkaði

    #508 Gervigreind á fjármálamarkaði


    Gervigreindin vanmetur verðmæti Alphabet. Það er álit Arnbjarnar Ingimundarsonar, framkvæmdastjóra Gnitaness fjárfestinga, sem ákvað að prófa sig áfram með að láta Gemini og Grok framkvæma verðmat á bandaríska tæknifyrirtækinu fyrir sig.

    Niðurstaðan var að bæði mállíkönin álitu rétt verð hlutabréf fyrirtækisins vera nokkuð langt fyrir neðan núverandi verð (sem hefur reyndar hækkað um rúm 65% á árinu). Tilgangur Arnbjarnar var að fá annað sjónarhorn á það hvort Gnitaness ætti að selja bréf og innleysa hagnað af fjárfestingu sinni í Alphabet eða ekki. Hann telur að gervigreindin vanmeti líklega mögulegar framtíðartekjur fyrirtækisins en það sé hins vegar, líkt og önnur fyrirtæki í S&P500 vísitölunni, orðið ansi hátt verðlagt.

    Arnbjörn birti helstu niðurstöður verðmats gervigreindarinnar á Linkedin síðu sinni og við fengum hann í Ræðum það… til að ræða aðeins um áhrif gervigreindar á fjármálamarkaði við Iðunni Hafsteinsdóttur sérfræðing hjá Stefni og Alexander Hjálmarsson hjá Akk greiningu.


    Rætt var um hvernig gervigreindin nýtist í störfum á fjármálamarkaði og Iðunn minnti á að fyrstu viðbrögð stærstu banka heims við því þegar gervigreindarlíkönin komu fram árið 2023 var að banna notkun þeirra í rekstrinum (m.a. af ótta við leka á upplýsingum). Enginn í viðmælendahópnum taldi hægt að treysta gervigreindinni fyrir fjárfestingarákvörðunum en að hægt sé að spara sér mikla handavinnu, ekki síst við að sía út fjárfestingarkosti. Arnbjörn sagðist ekki vinna minna vegna gervigreindarinnar heldur frekar meira því hann sé svo spenntur yfir öllum möguleikunum sem hún opni. Sérstaklega sé Gemini 3 líkanið frá Google gott tól að hans mati. Þá er Open AI afar óþjált nafn að mati Arnbjarnar sem telur að samkeppnisaðilar fyrirtækisins muni njóta þess að geta nýtt aðrar lausnir til að ná fólki í að nota þeirra gervigreind. Nokkuð sem Open AI hafi ekki þó að fyrirtækið sé stærsta brandið á meðal almennings sem stendur.

    Rætt var í þættinum um líklega kólnun á fasteignamarkaði og hvort heimilin yrðu fyrir skakkaföllum eða eingöngu verktakar og fjármögnunaraðilar. Alexander taldi að vaxtalækkun kæmi þar á móti ef svo færi að staðan yrði mjög svört.


    Fjallað var um mögulegar skráningar í Kauphöll á næstunni og efnahagsútlitið almennt. Arnbjörn hefur áhyggjur af fjölgun neikvæðra frétta af efnahagslífinu og aukningu atvinnuleysis.

    Rætt var um andbyr gegn sjálfbærum fjárfestingum og ólíka nálgun evrópskra og bandarískra stofnanafjárfesta í þeim málum. Iðunn sagði frá því að næststærsti lífeyrissjóðurinn í Hollandi hafi verið að fara úr stýringu hjá Blackrock eftir áratuga samstarf á dögunum og þá vegna stefnubreytingar sjóðastýringarfyrirtækisins í sjálfbærnimálum.

    Þá var rætt um fjárfestingar Íslendinga í landeldi og hvort þær væru mögulega offjárfesting, líkt og talað er um að eigi sér stað í gervigreindarfyrirtækjum. Alexander taldi svo ekki vera. Ljóst væri að auðvelt yrði að selja afurðir landeldisins en óvissan lægi í uppbyggingunni sjálfri og hvernig ræktunin muni ganga.

    Tenglar á nokkra hluti sem minnst var á í þættinum

    Viðtal CNBC við Marc Rowan, forstjóra Apollo um minni þörf á því að fyrirtæki séu skráð á markað: https://www.cnbc.com/video/2025/09/02/inside-alts-apollo-ceo-marc-rowan.html

    Frétt um mögulega skráningu Space X á næsta ári: https://www.bloomberg.com/news/articles/2025-12-13/spacex-sets-insider-share-deal-at-about-800-billion-valuation?srnd=homepage-europe

    Viðtal Alexanders við Heiðar Guðjónsson: https://open.spotify.com/episode/3TSRJxgmmb3aDniFEIMDDf?si=64b468b6ae21464d

    ————


    Við erum líka á https://raedumthad.substack.com


    Ræðum það… er spjallþáttur þar sem rætt er um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti.


    Þátturinn er í boði Góðra samskipta* og hefur komið út reglulega frá árinu 2020. Stjórnandi er Andrés Jónsson


    (*)Efnistök hlaðvarpsins eru óháð verkefnum Góðra samskipta á hverjum tíma. Við val á umræðuefnum og gestum þáttarins forðumst við alla hagsmunaárekstra.


    39 min

About Ræðum það...

From the publisher's feed

Atvinnulífsspjallþáttur þar sem við fjöllum um efnahagsmál, viðskipti, stjórnun og samskipti frá ýmsum hliðum